fbpx

Nesflói 1

Vistvæn og snjöll nálgun í byggingargerð

hér eignast þú aðstöðu og pláss fyrir þig og þitt

Nesflói 1 er sérlega vönduð og snjöll lausn í atvinnuhúsnæðum fyrir þá sem vilja sitt eigið pláss og atvinnurými í fyrirmyndar umhverfi Grænna iðngarða. Hér færðu hentugt atvinnurými fyrir fyrirtækið þitt eða fyrir hjólhýsið, vélsleðann, mótorhjólið, hobbíið, lagerinn og allt ómetanlega dótið þitt sem þú kemur ekki fyrir heima.

Snjalllausnin
Nesflói 1

Húsið er hannað og teiknað með það fyrir augum að byggingin myndi samræmast fallegri sýn og stefnu Grænna iðngarða með gæða efnisvali og snjöllum lausnum í fyrirrúmi. Öll hönnun Nesflóa 1 miðar að snjalllausnum en svæðið er afgirt með rafmagnshliði, öryggismyndavélum og aðgangsstýringum með snjallbúnaði.

Okkar sýn

TIL FRAMTÍÐAR

Við hjá Folium fasteignafélagi sjáum Græna iðngarða í Flóahverfi verða einn allra eftirsóttasta áfangastað framúrskarandi fyrirtækja og þeirra sem gera réttmætar kröfur til hönnunar og gæða í byggingargerð. Í upphafi skal endinn skoða.

Horfa á
Myndband

„Samstarfið við BM Vallá fellur vel að okkar markmiðum um Græna iðngarða og uppbyggingu atvinnusvæðis þar sem hugað verður sérstaklega að umhverfismálum, hringrásarhugsun og að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda. Húseiningarnar þeirra eru gæðavottaðar og unnið hefur verið jafnt og þétt að því að lækka kolefnisspor hvers framleidds rúmmetra, án þess þó að slá af neinum gæðakröfum.”

– segja Alexander Eiríksson, sölu- og markaðsstjóri og Guðmundur Sveinn Einarsson, framkvæmdastjóri hjá Folium fasteignafélagi.

Nesflói 1

Eiginleikar

Snjall lausnir og símastýringar

Lyklalaust aðgengi

Vistvænt umhverfi

Hleðslustöð fyrir rafbíla

Stutt í alla helstu þjónustu

Full frágengið og malbikað bílastæði

Afgirt svæði í kringum húsið með rafstýrðu öryggishliði

Merkt bílastæði fylgir hverju rými

Upphituð bílastæði

Góllfhiti í hverju rými

Þvottaaðstaða ökutækja og vatnstengi í hverju rými

Snjall lausnir í LED lýsingu

Öryggisvöktun með myndavélum og snjall skynjurum 24/7

Nesflói 1

SöLUAÐILI

Daníel Rúnar Elíasson

Löggiltur fasteignasali
hakot@hakot.is
899-4045

Þessi vefsíða notar vefkökur (cookies) til að bæta upplifun þína. Með því að halda áfram samþykkir þú stefnu okkar um vefkökur